Saman gegn fordómum
Jafnrétti og fordómar, fræðsla fyrir fullorðna
Fordómar verða ekki til af sjálfu sér, við lærum þá, oft án þess að taka eftir því, í gegnum menningu, umræðu og vana. Fordómar eru að dæma einhvern áður en við þekkjum viðkomandi, til að mynda út frá útlitiog hvaðan þau koma. Að ákveða fyrirfram hluti um fólk t.d. vegna húðlitar, þjóðernis eða uppruna.
Hjá AMSIS trúum við að besta forvörnin gegn fordómum sé þekking og skilningur. Þess vegna höfum við þróað fræðslu um jafnrétti og fordóma sem er nú í boði sem námskeið á netinu fyrir fullorðna.
Um hvað fjallar fræðslan?
Námskeiðið tekur þátttakendur í gegnum viðfangsefnið skref fyrir skref: hvað jafnrétti raunverulega þýðir í daglegu lífi, hvernig fordómar verða til og hvers vegna við föllum svo auðveldlega í þá gryfju að dæma það sem við þekkjum ekki. Við skoðum líka afleiðingarnar. Hvernig fordómar hafa áhrif á sjálfsmynd, tengslamyndun og tækifæri fólks sem verður fyrir þeim og hvernig þeir viðhalda sér í samfélaginu ef ekkert er að gert.
Að lokum er sjónum beint fram á veginn: hvað getum við, hvert og eitt, raunverulega gert? Námskeiðið endar ekki á vandamálinu heldur á verkfærunum, hvernig við tökum afstöðu, sýnum samkennd, verðum bandamenn og höldum áfram að læra um menningarheima sem eru ekki okkar eigin.
Fyrir hverja?
Fræðslan var upphaflega þróuð fyrir börn en hefur nú verið aðlöguð fyrir fullorðna og fer fram á netinu. Hún hentar jafnt einstaklingum sem vilja skoða eigin viðhorf sem og vinnustöðum, félagasamtökum og skólafólki sem vill bjóða starfsfólki sínu eða nemendum upp á vandaða og aðgengilega fræðslu um fordóma og fjölbreytileika.
Fyrir nánari upplýsingar og til að panta fræðslu má senda póst á amsis@amsis.is