William Ferreira, aðstoðarrektor Jean Piaget-háskólans í Gíneu-Bissá, ásamt Dr. Guðrúnu Helgu Diop Jóhannsdóttur og Dr. Þóru Björnsdóttur, stjórnarkonum AMSIS.
Ef þú fékkst valgreiðslu frá AMSIS í heimabankann þinn, að upphæð 3900 kr., viljum við segja þér af hverju hún var send.
AMSIS eru íslensk félagasamtök sem vinna gegn ójöfnuði, bæði hér heima og erlendis. Á Íslandi sinnir AMSIS fræðslu gegn fordómum. Í Vestur-Afríku, einkum Gíneu-Bissá, styrkir AMSIS háskóla í samstarfi við fólkið sem þar starfar. Þetta er í fyrsta sinn sem AMSIS leitar til almennings með þessum hætti.
Verkefni AMSIS í Gíneu-Bissá er styrkt af utanríkisráðuneytinu. Styrknum fylgir krafa um að AMSIS leggi sjálft fram mótframlag. Öll framlög sem berast með þessari valgreiðslu renna óskert í það mótframlag.
Greiðslan er að fullu valfrjáls. Ekki verða sendar ítrekanir, ekki reiknaðir vextir og krafan fer aldrei í innheimtu. Ef þú vilt ekki greiða geturðu einfaldlega eytt henni úr heimabankanum.
AMSIS er á almannaheillaskrá Skattsins. Gjafir til félagsins eru því frádráttarbærar frá tekjuskatti þegar framlög ársins til slíkra félaga ná samtals 10.000 kr. AMSIS tilkynnir gjafirnar til Skattsins og frádrátturinn birtist á skattframtali næsta árs.
Viltu styrkja með korti, gerast mánaðarlegur styrktaraðili eða ekki fá valgreiðslur frá AMSIS í framtíðinni? Sendu okkur þá línu á amsis@amsis.is.
Upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga má finna í persónuverndarstefnu AMSIS.
Takk fyrir að gefa þér tíma til að lesa.