Í fyrstu vettvangsheimsókn AMSIS til Gíneu-Bissá hittum við ungar konur sem taka þátt í verkefni okkar með Jean-Piaget háskólanum. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynnast aðstæðum þeirra og öðlast betri skilning á því hvað styður þær í námi og hvaða hindranir verða á vegi þeirra.
Við heimsóttum heimili þátttakenda og ræddum við þær um námið, daglegt líf og framtíðaráform. Þessar heimsóknir gáfu okkur tækifæri til að setja okkur betur inn í samhengi námsins og hlusta á reynslu ungu kvennanna á þeirra eigin forsendum.
Við héldum einnig rýnihópaviðtöl þar sem við ræddum stafræna færni, aðgengi að tölvum og framtíðartækifæri. Við vildum skilja hvernig þátttakendur nýta stafræna tækni, hvaða aðgang þær hafa að henni og hvaða færni þær vilja efla. Jafnframt ræddum við áskoranir í náminu og hvað þær telja mikilvægast til að geta nýtt tækifæri til menntunar og starfsþróunar.
Við komum til að hlusta og læra. Reynsla þátttakenda, þekking þeirra á eigin aðstæðum og forgangsröðun eiga að leggja grunn að áframhaldandi þróun verkefnisins. Með heimsókninni hófst því mikilvæg vinna við að móta næstu skref samstarfsins við Jean-Piaget háskólann í samtali við ungu konurnar sem taka þátt.