Frá útilokun til tækifæra

Efling stafrænnar færni í Gíneu-Bissá

AMSIS vinnur með Jean Piaget háskólanum í Gíneu-Bissá að því að bæta aðgengi ungra kvenna úr dreifbýli að háskólanámi með því að efla stafræna færni þeirra og aðgang að tölvum. Verkefnið byggir á þarfagreiningu sem sýndi að skortur á tölvum, veik stafræn færni og óstöðugir innviðir skapa verulegar hindranir fyrir námsárangur.

Tölvuver og stafræn færni

Sem hluti af verkefninu verður komið á fót tölvuveri við háskólann, þróað og kennt inngangsnámskeið í stafrænni færni og unnið náið með kennurum og starfsfólki að því að styrkja getu háskólans til framtíðar. Markhópur verkefnisins eru 120 ungar konur sem stunda nám við háskólann og búa við takmarkað aðgengi að tækni til náms.

Verkefnið er tilraunaverkefni sem leggur grunn að stærra og sjálfbærara samstarfi til framtíðar með það að markmiði að auka námsárangur, styrkja jafnrétti til menntunar og bæta framtíðartækifæri ungs fólks í Gíneu-Bissá.

Markmið verkefnisins

Yfirmarkmið verkefnisins er að ungar konur úr dreifbýli í Gíneu-Bissá hafi bætt aðgengi að tölvum og styrki stafræna færni sína þannig að þær geti tekið virkari þátt í háskólanámi.

Undirmarkmið 1

Að setja upp tölvuver við Jean Piaget háskólann.

Undirmarkmið 2

Að hanna og kenna stutt inngangsnámskeið í stafrænni færni.

Undirmarkmið 3

Að virkja lítinn hóp kennara og starfsfólks til þátttöku í hönnun og prófun námskeiðsins og fyrirkomulagi tölvuversins.

Undirmarkmið 4

Að skrá markvisst þann lærdóm sem draga má af verkefninu og undirbúa annan áfanga verkefnisins.