Styðja við starf AMSIS
Veldu þá leið sem hentar þér best
Gerast mánaðarlegur styrktaraðili
Þú getur stutt við starf AMSIS með mánaðarlegum framlögum að eigin vali.
Þú velur hversu háa upphæð þú vilt styrkja AMSIS um á mánuði, sendir okkur póst á amsis@amsis.is og við höfum samband til að ganga frá formsatriðum!
Eða hringir í 499 2024 og við gerum þetta saman.
Vertu félagi með árlegu framlagi
Félagar AMSIS styðja við starf samtakanna með árlegu framlagi að eigin vali.
Þú velur hversu háa upphæð þú vilt styrkja AMSIS um árlega, sendir okkur póst á amsis@amsis.is og við höfum samband til að ganga frá formsatriðum!
Eða hringir í 499 2024 og við gerum þetta saman.
Kaupa Vonarstjörnu
Þú getur keypt handgerða umhverfisvæna stjörnu sem framleidd er í Gíneu-Bissá og stutt þannig við starf AMSIS í landinu.
Til að kaupa stjörnu leggurðu inn á reikning AMSIS
0357 22 003081
440706 0100
Sendir svo greiðslukvittun á amsis@amsis.is ásamt heimilisfangi og símanúmeri.
Við sendum þér svo stjörnuna um hæl.
ATH! Engar tvær stjörnur eru eins.
Hvar starfar AMSIS og hvaða verkefni eru í gangi núna?
AMSIS eru frjáls félagasamtök sem hafa nýlega hafið starfsemi. AMSIS starfa í dag á tveimur sviðum: sinna málsvarahlutverki á Íslandi og þróunarsamvinnu í Gíneu-Bissá.
Hverjar eru áherslurnar í starfi AMSIS?
AMSIS byggja starf sitt á áratuga reynslu og rannsóknum á viðkomandi sviðum. Við leggjum áherslu á að samfélög leiði eigin þróun og að verkefnin séu unnin með fólki, ekki fyrir það.
AMSIS starfar eftir eftirfarandi gildum: Virðing, jafnrétti, inngilding, fagmennska og sjálfbærni.
Get ég styrkt ákveðinn hluta starfsins?
Já, það er vel mögulegt. Þú getur valið hvort framlag þitt renni til almenns starfs AMSIS sem styrkir bæði innlend og erlend verkefni eða hvort þú viljir styrkja sérstaklega uppbyggingu menntunar í Gíneu-Bissá eða vitundarvakningu á Íslandi.
Við leggjum áherslu á gagnsæi og að öll framlög séu nýtt í samræmi við óskir styrktaraðila og innan þeirra verkefna sem AMSIS hafa samþykkt að vinna að.
Þú getur alltaf haft samband við okkur ef þú vilt að framlagið þitt nýtist á ákveðnu sviði – við tökum fagnandi á móti öllum sem vilja hafa áhrif á þann heim sem við byggjum saman.
Hvernig veit ég að framlagið mitt skilar sér á réttan stað?
Gagnsæi og traust eru grunnstoðir í starfi AMSIS.
Allt fjármagn sem berst samtökunum er nýtt í samræmi við samþykkt verkefni og í nánu samstarfi við okkar samstarfsaðila. við birtum árlega skýrslu um starfsemi og fjármál, þar sem fram kemur hvernig framlög hafa verið nýtt og hvaða árangur hefur náðst.
Auk þess deilum við reglulega uppfærslum, myndum og frásögnum af vettvangi á heimasíðu og samfélagsmiðlum AMSIS, þannig að stuðningsaðilar geti fylgst með raunverulegum áhrifum framlaga sinna.
Er hægt að hætta eða breyta mánaðarlegum styrk hvenær sem er?
Já auðvitað. Þú getur bæði breytt upphæð mánaðarframlags eða hætt við styrkinn hvenær sem er.
Við vitum að aðstæður fólks breytast og því leggjum við áherslu á að stuðningurinn sé sveigjanlegur og byggi á trausti, ekki skuldbindingum.
Sendu okkur línu á amsis@amsis.is og við sjáum um að uppfæra eða stöðva greiðsluna án tafar.
Hvernig getur AMSIS haft áhrif á Íslandi?
Þróunarsamvinna snýst ekki aðeins um að hjálpa erlendis, hún snýst líka um að byggja upp réttlátara samfélag hér heima sem styður við þróunarsamvinnu.
AMSIS vinna að því að vekja vitund, efla fræðslu og draga úr ójöfnuði á Íslandi.
Við sinnum einnig málsvarahlutverki, þar sem við beinum sjónum að fátækt, jöfnum tækifærum og réttindum allra.
Markmið okkar er að Ísland sé land þar sem samkennd, jöfnuður og réttlæti endurspeglast í verki – bæði heima og út fyrir landsteinana.