Saga AMSIS
Frá upphafi til dagsins í dag.
AMSIS var stofnað árið 2006.
Þá studdu samtökin ungar konur í Dakar í Senegal um nokkurt skeið, samtökin voru mjög lítil en drifin áfram af þeirri trú að lítil samtök geti haft raunveruleg áhrif.
Svo, eins og oft gerist lognaðist starfið út af vegna skorts á fjármagni.
Eftir það lá AMSIS í hýði í rúman áratug.
Á þeim tíma sat Guðrún einn af stofnendum samtakanna ekki auðum höndum. Hún fór í doktorsnám í þróunarfræðum og kynntist þar Þóru, sem lauk sama námi og bera þær báðar titilinn doktor í þróunarfræðum. Guðrún hefur búið, starfað og stundað rannsóknir í Senegal um árabil, og Þóra á sömu sögu að segja af Ghana.
Stjórnarkonur AMSIS, Dr. Guðrún Helga Diop Jóhannsdóttir og Dr. Þóra Björnsdóttir í undirbúningsheimsókn í Gíneu-Bissá sumarið 2025.
Smellt var mynd af hópnum fyrir utan háskólann eftir árangursríka fundi við mótun fyrsta verkefnis AMSIS og Jean Piaget.
Dr. Guðrún Helga Diop Jóhannsdóttir og Fjóla Einarsdóttir stofnendur AMSIS, á upphafsdögum AMSIS í Dakar, Senegal.
Í gegnum eigin störf í þróunarsamvinnu hafa Guðrún og Þóra séð sama mynstrið aftur og aftur, háskólar og grasrótarsamtök í Afríku sunnan Sahara búa yfir metnaði og þekkingu, en fá sjaldan þá hagnýtu þjálfun sem þau sjálf biðja um. Í staðinn fá þau tilbúnar lausnir, hannaðar annars staðar, sem endast sjaldan lengur en verkefnistíminn sjálfur.
Í samtölum sín á milli áttuðu Guðrún og Þóra sig á að þörfin sem AMSIS var upphaflega stofnað til að mæta var enn til staðar. Svo þær ákváðu að vekja samtökin til lífsins á ný, nú með skýrri sýn á að íslensk sérþekking eigi að styðja við staðbundið eignarhald, ekki koma í staðinn fyrir það. Að háskólar og samtök í hverju landi viti best sjálf hvað þau þurfa og að hlutverk AMSIS sé að koma með verkfærin, ekki svörin.
Síðan hafa fleiri sérfræðingar bæst í hópinn. Margrét er sérfræðingur í fátækt á Íslandi og leiðir innlent starf samtakanna, sem snýr að fátækt og ójöfnuði hér heima, starf sem er hluti af sömu hugsjón þó sviðið sé annað. Erna Kristín er markaðsfræðingur og sér um að saga AMSIS skili sér áfram til fólks
AMSIS er ekki stór stofnun með flókið skipulag, heldur lítil samtök drifin áfram af vel menntuðum og faglegum sérfræðingum sem trúa því að lítil samtök geti haft raunveruleg áhrif, ef faglega er staðið að verki. Saman deilum við sömu sannfæringu um að gott samstarf byggist á virðingu, ekki ölmusu. Þinn stuðningur er hluti af því.
Aladjé Balde rektor Jean Piaget háskólans í Gíneu-Bissá, William Ferreira aðstoðarrektor Jean Piaget háskólans, Dr. Jónína Einarsdóttir í samstarfsráði þróunarsamvinnu, Dr. Geir Gunnlaugsson í samstarfsráði þróunarsamvinnu (tók myndina), Dr. Guðrún Helga Diop Jóhannsdóttir og Dr. Þóra Björnsdóttir funda í Gíneu-Bissá um mótun fyrsta samstarfsverkefnis Jean Piaget og AMSIS.