Í dag, þriðjudaginn 11. ágúst, var haldinn formlegur upphafsfundur (kick-off meeting) fyrsta þróunarsamvinnuverkefnis AMSIS í Gíneu-Bissá. Með fundinum hófst verkefnið formlega og markar það mikilvæg tímamót í sögu samtakanna.

Verkefnið er eins árs tilraunaverkefni sem hlaut styrk frá utanríkisráðuneytinu. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við Jean Piaget háskólann í Gíneu-Bissá og byggir á þarfagreiningu sem AMSIS framkvæmdi á vettvangi á síðasta ári. Sú vinna lagði grunninn að verkefninu og tryggði að markmið þess og framkvæmd væru mótuð út frá þeim þörfum og forgangsröðun sem samstarfsaðilar okkar í Gíneu-Bissá skilgreindu.

Á upphafsfundinum var farið yfir markmið verkefnisins, verkaskiptingu, tímaáætlun og næstu skref. Jafnframt var lögð áhersla á mikilvægi góðrar samvinnu, reglulegra samskipta og sameiginlegrar ábyrgðar á framkvæmd verkefnisins.

Verkefnið miðar að því að efla stafræna þátttöku og bæta aðgengi ungra kvenna úr dreifbýli að háskólanámi með því að styrkja stafræna innviði og byggja upp færni bæði nemenda og starfsfólks. Jafnframt er verkefninu ætlað að skapa grunn að langtímasamstarfi milli AMSIS og samstarfsaðila í Gíneu-Bissá sem geti leitt til frekari uppbyggingar á komandi árum.

Fyrir AMSIS er þetta meira en upphaf eins verkefnis. Þetta er fyrsta skrefið í þeirri framtíðarsýn að styðja við getuuppbyggingu háskóla í Afríku sunnan Sahara með samstarfi sem byggir á gagnkvæmri virðingu, staðbundnu eignarhaldi og sjálfbærum lausnum.

Framundan eru spennandi mánuðir þar sem fyrstu verkefnaþættirnir fara af stað og samstarfið tekur á sig mynd.