Þegar við hættum að finna til með öðrum, óháð uppruna, höfum við tapað því sem gerir okkur mannleg

Þessar staðhæfingar: „við þurfum að hugsa um okkur áður en við getum hjálpað annars staðar“ og „það er líka fátækt fólk á Íslandi og það gengur fyrir“ heyrast því miður sífellt oftar og virðast fá aukinn hljómgrunn hjá sífellt stækkandi hópi íslensks samfélags. Staðhæfingar sem þessar endurspegla mjög hættulegt viðhorf: það að heimurinn sé ekki samtengdur, að velferð okkar hér heima sé óháð því sem gerist annars staðar. Slíkt viðhorf á ekki lengur rétt á sér. Heimurinn er of samtengdur til að við getum leyft okkur að líta undan. Það er hættuleg sjálfsblekking að halda öðru fram.

Þróunarsamvinna er mikilvægari nú en nokkru sinni fyrr

Í heimi þar sem stríð, óstöðugleiki og loftslagsbreytingar hafa áhrif á líf milljóna, hefur mikilvægi þróunarsamvinnu aldrei verið meira. Þrátt fyrir að mörg ríki dragi úr framlögum sínum er þörfin brýnni en nokkru sinni fyrr. Kreppur og átök annars staðar í heiminum hafa bein áhrif hér heima, matvælaverð hækkar, fólki á flótta fjölgar og óstöðugleiki eykst. Þróunarsamvinna er því ekki aðeins spurning um fjárframlög heldur um réttlæti, mannréttindi og sameiginlega ábyrgð á framtíð heimsins. Með því að efla samfélög til að nýta eigin krafta og þekkingu, í gegnum menntun, jafnrétti og sjálfbærar lausnir, styrkjum við grunn friðar og stöðugleika sem nær langt út fyrir þeirra landamæri. Þróunarsamvinna er þannig fjárfesting í öruggari og réttlátari heimi, ekki ölmusa, heldur samábyrgð á framtíð sem við deilum öll.

Ísland hefur ábyrgð

Ísland hefur á undanförnum árum byggt upp orðspor sem áreiðanlegur og ábyrgur samstarfsaðili í þróunarsamvinnu. Það orðspor ber að verja. Þróunarsamvinna er ekki aðeins hluti af utanríkisstefnu – hún endurspeglar hver við erum sem þjóð og hvaða gildi við stöndum fyrir. Því má fagna að íslensk stjórnvöld standi með þróunarsamvinnu og hafi sett sér markmið um að auka framlög á næstu árum – slíkt endurspeglar ábyrgð, framsýni og virðingu fyrir alþjóðlegum skuldbindingum.

Ef við viljum samfélag sem byggir á jafnrétti, virðingu og mannlegri reisn, þá þurfum við að standa með þeim gildum – líka þegar þau krefjast þess að við lítum út fyrir landsteinana. Að hjálpa öðrum er ekki í mótsögn við að hugsa um okkur sjálf. Þvert á móti, með því að taka þátt í lausnum á hnattrænum áskorunum byggjum við betri framtíð fyrir öll. Ef við viljum öruggan heim fyrir okkur sjálf, verðum við að taka þátt í að byggja réttlátan heim fyrir aðra.

Verum mannleg og minnumst þess að við gætum allt eins verið fædd þar sem hungrið sverfur að, stríð geysar eða framtíðin er óviss. Að finna til með öðrum, óháð uppruna, er það sem gerir okkur mannleg.

Greinin birtist á visir.is 18. nóvember 2025

Hafðu samband

AMSIS
kt. 440706-0100
+354 499 2024
amsis@amsis.is

Fylgdu okkur